Úff hvað tíminn líður hratt! Á sunnudaginn átti Fríða Valdís afmæli, þessi yndislegi gleðigjafi er orðin 7 ára. Dagurinn byrjaði á að hún kom upp í til mín og vildi fá sinn afmælissöng og pakka og var himinsæl að fá bratz-dúkku og ekki minnkaði gleðin þegar allt í einu hringdi sími ofan í poka. Þar var þá afmælisgjöfin frá Eddu ömmu. Þær systur löbbuðu síðan í sunnudagaskólann og þar var sungið fyrir afmælisbarnið. Vinkonurnar komu svo í veislu kl. þrjú. Þið getið rétt ímyndað ykkur fjörið í 10 sjö og átta ára stelpum Amma, afi og Einar komu svo í kvöldmat og það var engu minna fjör, afi meira að segja dansaði við stelpurnar. Þær systur fengu allar flotta ullarsokka sem amma prjónaði, með glimmeri meira að segja, Ásta Lóa fékk fallegan kjól og stóru stelpurnar köflótt vesti með hettu og loðkraga, svaka skvísulegt. Það þurfti nánast að múta Fríðu til að fara úr því áður en hún fór að sofa.
En þessi sjö ára stelpa ætlar ekki að læra ballett í vetur eins og undanfarin ár heldur stefnir hún ótrauð á fótbolta! Á morgun fer hún á fyrstu æfinguna og hlakkar mikið til. Það verður gaman að sjá hvernig henni líkar, vonandi bara vel því þetta er góð hreyfing fyrir hana og frábært tækifæri til að kynnast fleiri stelpum.
Af stóru og litlu systur er allt gott að frétta. Edda Sólveig fór í fyrsta balletttímann í dag og var mjög ánægð, gaman að vera komin aftur í ballettskólann sagði hún. Ásta Lóa er mjög dugleg í leikskólanum sínum, ja nema við að borða. Hún unir sér vel og leikur sér og virðist bara ánægð, sem er auðvitað alveg nauðsynlegt fyrir alla, það er ekkert auðvelt að skilja barn eftir sem er á orginu en vissan um að þetta hætti fljótt gerir manni kleift að halda áfram og líta ekki við. Reyndar grét hún ekkert síðast þegar hún fór þangað.
Knús og kossar elskurnar,
Lóa
Nú er haustið handan við hornið og helsta merki þess er auðvitað að skólarnir eru byrjaðir. Gaman gaman
Það ríkti töluverð spenna hér í morgun þegar stóru stelpurnar gerðu sig klárar til að mæta á skólasetninguna, sem við Ásta Lóa fórum auðvitað á líka. Það var líka heilmikil stemmning í skólanum, greinilega allir spenntir, nemendur og kennarar líka, fyrir nýju skólaári. Edda Sólveig knúsaði Gunnar kennarann sinn þegar hún hitti hann aftur og Fríða Valdís hljóp í fangið á Bjarna gamla kennaranum sínum. En hún fær nýjan kennara í vetur, Bjarni þurfti víst að sitja eftir í 1. bekk og söknum við hans mikið, okkur líst samt vel á nýja kennarann, henni Elínu, og hlökkum mikið til að kynnast henni.
Ásta Lóa er líka byrjuð í sínum skóla, leikskólanum Sólgarði. Í dag var þriðji dagurinn í aðlögun og hún var ein í dag, í klukkutíma. Leikskólakennarinn sem var með hana hafði orð á að hún væri ákveðin ung dama. Hún öskraði svo mikið að strákurinn sem er líka í aðlögun var skíthræddur við hana og var farið  með hann fram, greyið litla, fyrstu kynni hans af kvenþjóðinni byrja ekki vel. En sem betur fer öskraði hún ekki í klukkutíma en alveg fyrstu 10 mínúturnar og svo lék hún sér en lét samt heyra í sér aftur annað slagið. Á morgun mætir hún svo klukkan tvö og verður til hálffjögur, fær þá að drekka með hinum krökkunum.
Skólinn minn byrjar svo í næstu viku, það er því eins gott að aðlögunin gangi vel fyrir sig og daman verði orðin þokkalega sátt á leikskólanum, fjarri mömmufaðmi þar sem hún vill helst vera.
Kv.
Lóa og stelpurnar
Edda Sólveig mín er svo einlæg í ást sinni á fjölskyldunni. Þegar ég sagði henni að afi væri kominn heim eftir mánaðar fjarveru á sjó spurði hún strax hvað við ættum að kaupa handa honum. Ég vissi nú ekki að við þyrftum að kaupa nokkuð en þá sagði hún - og það kom frá hennar dýpstu hjartarótum: Afi var að koma heim af sjónum, heldurðu að ég færi honum ekki gjöf!
Nú er liðið ár og nærri sólarhring betur síðan ég lá og rembdist af öllum kröftum. Já Ásta Lóa er orðin eins árs!
Þetta er svo stórkostleg upplifun, að finna kollinn þrýsta sér út, sársaukinn fer um allan líkamann og ekkert annað kemst að en að losna við hann. Rembast og öskra og reyna að koma barninu út og svo gerist það. Kollurinn er kominn og fljótlega fylgir litli líkaminn á eftir, litli heiti líkaminn sem allt í einu er kominn ofan á magann minn. Þvílíkur léttir og þvílík fegurð sem við mér blasir. Lítil fullkomin stúlka horfir á mig dökkum, yndislegum augum. Fyrir nokkrum sekúndum vildi ég bara öskra, núna get ég ekki hætt að hlæja.
Ótrúlegt að þetta gerðist fyrir ári síðan en ekki bara nokkrum dögum. Hún var svo yndisleg svona nýfædd, horfði á okkur pabba sinn og leitaði svo eftir einhverju að sjúga og var fljót að ná tökum á brjóstinu. Svo lá hún heillengi á bringunni á mér. Þegar pabbi hennar var farinn fórum við að sofa og hún lá við hliðina á mér og gaf frá sér yndisleg værðarhljóð, henni leið greinilega vel.
Nú er þessi litla dama orðin ársgömul og alveg jafnyndisleg, þó kannski á annan hátt. Heimsins mesta frekja segja systur hennar, ég hugsa að hún komist alla vega í topp 20. Já hún er mjög ákveðin og vill gera flest sjálf en eins og er með þennan aldur er viljinn mun meiri en getan. Og hún er hætt á brjósti, ekki að eigin frumkvæði þó og hún er sko alls ekki sátt og lítið kát með mömmu sína þessa dagana.
Þessi eins árs dama er líka byrjuð á leikskóla, búin að fara tvisvar og finnst það gaman en bara þangað til mamma fer. Hún er eiginlega ekkert sátt við að missa mömmu sína úr augsýn og þá er bara öskrað og öskrað. Úff þetta verður ekki auðvelt en fóstrinn hennar er fullur bjartsýni á að vinna hana á sitt band. Á mánudaginn á ég að skilja hana eftir í klukkutíma Hún öskraði allar tíu mínúturnar sem ég fór frá henni í dag. Þetta tekur sinn tíma og hún þarf sko að venja sig af þessari móðursýki sinni, og ætli mamman þurfi ekki líka að venjast að vera án hennar.
Afmælisstelpan er ekki farin að ganga en hún skríður áfram á rassinum og kemst ansi hratt yfir. Hún er líka farin að standa upp sjálf en ekki að ganga með en það kemur örugglega fljótt. Henni finnst mjög gaman að fara í bað með systrum sínum og lætur sko gremju sína skýrt í ljós þegar hún er tekin upp úr, enda er það ekki að hennar beiðni sem hún fer upp úr. Það er líka gaman þegar stóru systurnar nenna að leika við hana og leyfa henni að vera með inni í herbergi.
Það var nú engin stórveisla í dag, skammarlegt frá að segja. Hún fékk nú samt dúkku í afmælisgjöf og við mæðgur erum búnar að syngja oft fyrir hana afmælissönginn. Svo settum við kerti á súkkulaðiköku og Fríða blés fyrir hana. Ásta vissi ekkert hvað þetta átti nú allt að þýða, en ég sagði stelpunum að vera alveg rólegar, hún á eftir að fatta hvað afmæli er
Já tíminn líður sko hratt. Sumarið senn á enda og skólinn hefst eftir helgi. Edda fer í 3. bekk og Fríða í 2. bekk. Hugsið ykkur, það er svo stutt síðan þær voru á leikskóla. Og nú er pabbi orðinn fimmtugur og við það tækifæri var nú meðfylgjandi mynd tekin af fjölskyldunni.
Knús og kossar,
Lóa
Og hér er ein af afmælisstelpunni, svo kát með ísinn sinn:
Nú er hún mamma aldeilis að gleyma sér, skrifar bara ekkert í margar vikur. En annars er nú allt gott að frétta af okkur, ég stækka og stækka og systur mínar líka, rosalega duglegar við það segir mamma. Þær fóru í leikhús um daginn og sáu Kardemommubæinn. Ég fékk ekki að fara með, í staðinn fór ég til ömmu og öskraði á hana í nærri klukkutíma. Hún vill örugglega ekkert passa mig aftur, enda eins gott því ég vil bara vera hjá mömmu minni. Og jú hjá pabba líka. En það var víst mjög gaman í leikhúsinu, það var ljón og ræningjar og alls konar.
Vitiði hvað. Bráðum fara stelpurnar í sumarfrí og þá verður sko gaman, þær verða alltaf heima til að leika við mig. Eða ég held það alla vega. Mamma er búin í sínum skóla, reyndar var hún ekki mikið í honum í vetur en hún tók eitt námskeið og fékk 9, samt var ég rosalega mikið veik þegar hún var að gera verkefnið sitt og vildi bara vera í fanginu hennar. Hún er sko algjör snillingur hún mamma mín
Mamma er búin að lofa mér að skrifa meira fljótlega því ég hef svo margt að segja ykkur, svo fylgist með.
Kær kveðja,
Ásta Lóa
Edda Sólveig er orðin 8 ára:) Mikil hamingja hefur ríkt hér í dag og mjög gaman að fá bekkjarsystur sínar í afmælið ásamt bestu vinkonunum, Margréti Sól og Þórhildi Rósu.
Það var líka frábært að fá Silfursafnið hans Páls Óskar, tveir geisladiskar ásamt DVD-diski.  Og það er sko búið að horfa og hlusta og horfa og hlusta og horfa. Ljúfa líf ljúfa líf, hljómar enn í hausnum á mér.
Hér er afmælisbarnið að opna pakkana
Er Ásta Lóa svona stór? Vááá!
Þetta heyrist nokkrum sinnum á dag hérna hjá okkur og Ásta Lóa lyftir höndunum upp í loft, svakalega flott Og hún er sko orðin stór og dugleg litla daman okkar. Hún verður 7 - já sjö - mánaða núna 21. mars og hún kann að sitja sjálf.
Nú situr hún á gólfinu og leikur sér, voða glöð með sig. Það er ótrúlegt hvað hún er stöðug, ekki með neinn stuðning, bara svona öryggispúða aftan við sig. Og hún syngur, með sínu nefi að sjálfsögðu og rekur upp hin ýmsu hljóð við misjafnar, mjög svo misjafnar undirtektir systra sinna. En hey, maður verður að láta heyra í sér og vera ákveðin frá fyrsta degi til að verði ekki borin ofurliði af stóru stelpunum.
Ásta Lóa er alltaf að læra eitthvað nýtt. Það nýjasta er að klappa saman lófunum. Já hún fylgist vel með mömmu sinni klappa og klappa og klappa og svo stundum rata lófarnir hennar saman (Ástu Lóu altso, mömmu lófar rata alltaf saman).
Ásta Lóa er líka búin að læra á pabba sinn, enda er það nú auðlært. Þegar búið er að heilla hann, sem hún auðvitað er löngu búin að gera, er hægt að fá hann til að gera hvað sem er. Sko, maður rekur bara upp hljóð og þá er hann kominn. Svo brosir maður og þá lyftist pabbi allur upp og kætist og ef það virkar ekki til að hann taki mann í fangið þá þarf að sýna smá ákveðni (þið getið hiklaust lesið þetta sem frekju) og þá bara allt í einu er maður kominn í fangið á pabba sínum Mamma kann þetta, þó hún fari kannski heldur fínna í það en Ásta. Edda og Fríða kunna þetta og Ásta Lóa er sko orðin snillingur í þessu, slær okkur hinum algjörlega við.
Hér er önnur mynd af litla snillingnum, sjálfsagt er hún að hringja í pabba sinn þarna.
Edda Sólveig færði fyrstu dagbókarfærsluna sína inn í dag í litla fallega skrifblokk. Verð bara að leyfa ykkur að sjá hvað hún skrifaði.
Fríða las í dag. Jeg heirði að hún er orðin góð í að lesa. En ekki orðin jabn góð og ég. Og ég fór til ömmu. Það var gaman hjá ömmu.
Er eitthvað yndislegra en þetta?
Við Ásta Lóa fengum góða gesti í heimsókn áðan, Inga María gömul vinkona mín frá fyrstu háskólaárunum kom með dóttur sína sem er 11 mánaða. Við endurnýjuðum kynnin í gegnum facebook, ótrúlegt en satt. Og nú er Ásta Lóa búin að eignast nýja vinkonu, hana Önnu Lilju
Það var gaman að fylgjast með þeim, önnur farin að ganga með en hin situr ekki sjálf. Þær fylgdust nú samt hvor með annarri af áhuga og tókust í hendur meðan þær borðuðu. Svo léku þær sér á gólfinu, Anna Lilja hafði nú samt þann hreyfanleika sem Ástu Lóu langar í en hann kemur. Það fór bara vel á með þeim og við hlökkum mikið til að hitta þær mæðgur aftur.
En hér er smá getraun. Hver sagði þetta: Pabbi, það á ekki að hafa skó undir borði! Vísbendingu má finna í Bréfi til Söru hér á síðunni ef þetta reynist of erfið spurning
Þær systur hafa nú alltaf verið hrifnar af pabba sínum, skiljanlega, en ég held að Ásta Lóa slái nú samt öll met í því. Strax í móðurkviði var hún orðin spennt fyrir honum, spriklaði og sparkaði þegar hún heyrði í honum. Það voru nú meiri lætin stundum. Núna verður hún alltaf kát þegar hún sér hann vælir ef hann sýnir henni ekki athygli, henni finnst bara pabbi sinn skemmtilegastur af öllum
Þessari hrifningu fylgir líka afbrýðisemi. Já sex mánaða gamalt barnið verður afbrýðisamt ef pabbi er með stóru stelpurnar! Hún var nú ekki mjög gömul þegar hún vældi fyrst yfir þessu, bara um 4 mánaða minnir mig. Þá var Edda í fanginu á pabba sínum og Ásta sat í fanginu á mér og bara vældi þar til pabbi hennar tók hana. Og núna sýnir hún þetta enn betur. Í kvöld vorum við öll, klessufjölskyldan, í sófanum og horfðum á sjónvarpið, ja nema Ásta var lítið að fylgjast með því. Hún sat hjá mér og sönglaði og spriklaði kát, þar til hún fattaði að Fríða lá hjá pabba sínum. Þá orgaði hún, já hún vældi ekki heldur orgaði. Og hætti ekki fyrr en hún var komin þar sem Fríða var. Þá varð hún ofsakát og spjallaði við pabba sinn og söng og hló. Þvílík gleði.
Hér eru þau saman í fyrsta sinn, pabbi og Ásta Lóa.
Undirrituð átti afmæli í vikunni. Það er svo sem ekki í frásögur færandi, það eiga jú allir afmæli einu sinni á ári. En stóru stelpunum finnst afmæli frábær og eftir að þær fóru að hafa smá vit í kollinum hefur þeim þótt nauðsynlegt að gera eitthvað í tilefni dagsins. 4. mars í ár var því engin undantekning.
Þær 'vöktu' mig með afmælissöng og knúsi, og það er auðvitað frábær byrjun á deginum:) En þetta var skóladagur, hvort sem mamma átti afmæli eða ekki. Fríða bað reyndar um að vera í Plútó-fríi og voru þær því báðar búnar snemma og gátu farið með pabba sínum í Smáralindina að kaupa afmælisgjöf handa mömmu sinni. Þau færðu mér svo fallegan rósavönd og konfektkassa sem ég í græðgi minni át nánast ein, Nói svíkur sko engan
Ragnhildur kom svo seinni partinn með sín börn og færði mér gjöf, servíettur, kerti og páskakanínu. Það er eiginlega orðin hefð að fá þau í heimsókn á afmælisdaginn, held það yrði hálftómlegur dagur ef þau kæmu ekki. Svona eins og ef amma hringir ekki í mann á afmælinu þá vantar eitthvað. Og svo komu mamma og Valdimar í kvöldmat og gáfu mér í tilefni dagsins rauða eldhússvuntu. Nú getur mamma sko farið að baka hrópaði Fríða Valdís himinlifandi:)
Það var svo ljómandi fallegt bros sem læddist yfir andlit dætra minna þegar þær voru lagstar á koddann og ég kyssti þær góða nótt og þakkaði þeim fyrir að gera afmælisdaginn minn svona góðan. Þær eru sko alveg yndislegar.
Takk takk elsku Bárður, Edda, Fríða og Ásta fyrir afmælisgjöfina og skemmtilegan dag. Takk elsku Ragnhildur og kó fyrir að koma, mér fannst æðislegt að fá ykkur, þó stutt væri. Og elsku mamma og Valdimar, takk fyrir að koma og borða með okkur.
En í dag, 8. mars, eiga litlu strákarnir hennar Söru afmæli. Alltaf segir maður litlu strákarnir, þeir eru sko orðnir 2ja ára, þeir Kolbeinn Hrafn og Þorsteinn Úlfur. Til hamingju með daginn elskurnar mínar:) Þið eigið inni hjá okkur afmælisknús og pakka þegar þið komið heim í sumar.
Knús og kossar til ykkar allra,
Lóa - sem orðin er eldri og reyndari en síðast:)
Elsku besta Sara systir
Hún mamma mín stendur sig ekkert í því að blogga um okkur systur svo ég verð bara að taka þetta að mér. Kannski er hún bara orðin svona þreytt eftir að halda mikið á mér, ég er orðin soddan mömmustelpa og hef varla mátt missa hana úr augsýn. Og mamma segir að það sé vegna þess að ég hef verið lasin, með kvef og eyrnabólgu, iss hún veit ekkert sko. Auðvitað má ég ekki af mömmu sjá af því hjá henni finnst mér best að vera. Og svo pabba líka þegar hann er heima, sérstaklega er gott að sofa í fanginu á honum.
Ég er sko orðin stór núna, enda meira en 6 mánuðir síðan ég fæddist. Mamma fór með mig í skoðun um daginn og þá var ég sko orðin 65 sm og um 6500 gr. Ég er líka farin að borða og finnst best að fá grautinn minn og kannski smá eplamauk út á. Kartöflur finnst mér ekki góðar, ég bara gubba af þeim samt er mamma oft að prófa að gefa mér þær. Segir eitthvað að ég verði að læra að borða þær. Svo hefur hún reynt að gefa mér eitthvað sem hún kallar brauð með smjöri en ég passa mig sko á að opna ekki munninn ef þetta kemur nálægt mér. Jakk. Hún á bara að gefa mér graut og helst ekki þessa ab-mjólk *hrollur* sem hún gaf mér þegar ég var á pensillíni. Getur þú sagt henni þetta fyrir mig?
En það var sko mikil spenna þegar ég fékk graut í fyrsta sinn, Edda og Fríða vildu báðar gefa mér og fannst þetta svo gaman. Þær eru ekkert svo æstar í að gefa mér að borða í dag. En hér er ég að fá graut í fyrsta sinn og er sko alveg til í það. Á næstu mynd sýni ég þér hvað ég borðaði mikið... eða hvað ég ætla að stækka mikið... æ ég man það ekki. En það var alla vega svona stórt!
Og hvað er Ásta stór??? Þetta kann ég sko alveg og finnst það ferlega fyndið að sjá hvað mamma og pabbi verða fyndin á svipinn þegar þau gera þetta, svona kjánamontsvipur sem kemur á þau. Þau lyfta samt ennþá upp höndunum mínum en ég veit samt alveg hvað á að gera þeim finnst bara svo gaman að hjálpa mér að ég leyfi þeim það, læt þau ekkert vita að ég get þetta sjáf. Uss ekki segja.
Við höfum verið mikið heima undanfarnar vikur því ég var lasin og mamma var lasin og stelpurnar pínu lasnar. Og það er búið að vera kalt og mikill snjór en svo fór snjórinn, mömmu til mikillar gleði en svo er hann bara kominn aftur, skil þetta ekki alveg en mér er svo sem alveg sama ég þarf ekki að vaða skafla með vagn í eftirdragi eða skafa bílrúður. Við höfum nú samt farið pínu út, eins og í ballettskólann og svoleiðis. Og svo fórum við í afmæli hjá afa, hann varð sextugur um daginn. Það var mjög gaman en allir borðuðu saltkjöt og baunir nema ég fékk ekkert svoleiðis, ekki einu sinni almennilegan graut því mamma gleymdi honum heima. Ég fékk ekki heldur kökur á eftir en systur mínar voru voða glaðar því það var bæði súkkulaðikaka og marsipanterta, ég held að það verði mjög gaman að fá svoleiðis einhvern tímann. Við systurnar máluðum myndir handa honum, hann fékk því þrjú málverk frá okkur í afmælisgjöf. Mamma gleymdi að taka myndir af listaverkunum en í staðinn er hér mynd af okkur í fanginu á afa, hann fékk líka svona mynd.
Systur mínar voru voða spenntar fyrir öskudeginum og spáðu mikið í hvernig búning þær ættu að vera í. Fríða vildi bara vera norn og þá er nú aldeilis gott að eiga svona góðar vinkonur eins og Margréti Sól og Þórhildi Rósu því þær lánuðu henni nornabúningana sína. Edda vildi ekki vera álfur eða prinsessa en var í staðinn Rauðhetta. Mamma málaði þær svo svaka flott í framan. Hér er mynd af Fríðu Ógurlegu og Rauðhettu með blóm í körfunni. Nornin ógurlega fór svo á frístundaheimilið í öskudagshúllumhæ en fyrst tóku þær lagið í bakaríinu og fengu í staðinn skúffukökubita. Við mamma og Edda skunduðum hins vegar til ömmu. Fyrirgefðu það var Rauðhetta en ekki Edda sem fór til ömmu, að vísu ekki með vín og kökur handa ömmu enda má hún ekkert fá svoleiðis. Seinna um daginn komu svo bestu bestu vinir okkar í heimsókn en það eru Eiríkur Örn, Þórhildur Rósa og Margrét Sól. Svo öskudagur var bara mjög skemmtilegur þrátt fyrir að mamma hafi ekki sett mig í búning. Edda var alltaf að biðja mömmu um það en mamma vildi það ekki. En sko næsta öskudag kemst hún ekki upp með annað en að klæða mig í búning. Veistu Sara það er svo gaman að eiga svona stórar systur eins og Eddu og Fríðu því það er endalaust hægt að heyra sögur af þeim. Til dæmis þegar þær fóru fyrst í grímubúning, þá var Edda að verða 3 ára og var á leikskóla. Hún fór í heimatilbúinn Línu-búning (rosalega flottan) og fékk freknur og tíkó. Fríða fékk að fara í skokk og fá freknur þó hún væri bara hjá dagmömmu. Það er til flott mynd af þeim systrum í þessum búning, kannski skannar mamma hana inn einhvern tímann. En það fyndna við þetta er að Edda Sólveig hætti ekkert að vera Lína þó öskudagurinn væri búinn, næstu vikurnar hún fór ekki í leikskólann öðruvísi en með tíkó og freknur:) Bara eins og ef þú færir ekki út nema setja á þig maskara eða varalit.
Þessar skemmtilegu systur mínar eru núna í vetrarleyfi og eru búnar að vera heima í FIMM daga og þegar mamma sagði þeim áðan að nú skyldu þær lesa - því þær eiga alltaf að lesa heima - hurfu þær inn í herbergi að leika sér og veistu það Sara að þær hafa ekki verið svona góðar vinkonur lengilengi. Kannski er ráðið að láta þær fara að læra til að þær leiki sér fallega saman. Neinei ég segi svona, langoftast eru þær góðar vinkonur. En ég held stundum að þær séu ekki eins hrifnar af mér og fyrst, t.d. segir Edda mér oft að þegja. Já trúirðu þessu. Hún er kannski að horfa á eitthvað í sjónvarpinu og ég er bara að syngja eða segja henni eitthvað skemmtilegt, kannski bara að tala um teiknimyndina þá segir hún bara þegiðu Ásta. Þá fer ég bara að hlæja og hlæja, hún er svo fyndin. Sérstaklega þegar hún segir mér bara aftur að þegja og þá bara hlæ ég enn meir.
Fríða er oft að segja eitthvað fyndið en ég get aldrei munað það, mömmu finnst það fyndið því það er stundum ekki alveg rétt, eins og til dæmis að vera illtara einhvers staðar. Mömmu finnst hún algjör málfræðisnillingur. Og svo býr hún til orð, eins og að blautklúta, það er sem sé að þvo á mér rassinn með blautklút. Mjög skynsöm og alveg rétt orðmyndun, segir mamma:) Og svo er hún líka oft að segja pabba fyrir verkum, hún Fríða sko (mamma segir honum líka fyrir verkum en ég er ekkert að skrifa það hér). Fríða fór til hans um daginn og sagði 'Pabbi, mundu svo að slökkva öll ljósin þegar þú ferð að vinna'. Það er svo fyndið með Fríðu, hún vill hafa allt í röð og reglu (sko hennar uppáhaldsþáttur var einu sinni Allt í drasli, þrífuþátturinn kallaði hún hann), lokar öllum skápum og skúffum sem pabbi gleymir að loka, hún hefur ákveðnar skoðanir á hvar hlutirnir eiga að vera og svona en hún nennir sko alls ekki að taka til sjálf, henni tekst alltaf að koma sér undan því og svo má Edda ganga frá öllu. Ég ætla sko að hjálpa henni þegar ég verð stór eða sko stærri, eða ég held það alla vega. Hérna færðu enn eina myndina af stóru flottu kláru systrum mínum, sem ég hlakka svo til að leika meira við:
Elsku besta Sara mín ég hlakka mikið til að hitta þig þegar þú loksins kemur heim, og líka þessa prakkarafrændur mína sem eru nú að verða tveggja ára segir mamma. Við horfum stundum á videomyndirnar af þeim þar sem þeir eru að príla upp á allt og leika sér. Þá segja Edda og Fríða 'Oooh ég vildi ég væri þarna hjá þeim'. Þær hlakka sko líka til að hitta ykkur aftur.
Nú eru þær búnar að setja mig í dúkkukerru og keyra mig um allt, vá hvað þetta er gaman.
Knús og kossar Sara mín. Edda og Fríða biðja sko kærlega að heilsa og auðvitað mamma og pabbi líka.
Þín litla systir,
Ásta Lóa
Nú hefur Ásta Lóa farið á sitt fyrsta þorrablót, tími til kominn sko! Eiginlega var þetta líka fyrsta þorrablót stóru stelpnanna ef frá eru talin leikskólaþorrablótin.
Já við fórum á þorrablót, öll fjölskyldan, og skemmtum okkur konunglega í góðum félagsskap. Ragnhildur og Sveinn buðu okkur á Þorrablótið í Gvendargeisla og fengum við ekta þorramat, súran og kæstan og reyktan og allt eins og það á að vera og átum við á okkur gat.
Það voru því þreyttar stelpur sem lögðust á koddann í kvöld, enda komum við ekki heim fyrr en að ganga tólf. Skemmtilegast af öllu var, fannst Fríðu Valdísi, að krakkarnir fengu sko að leika sér, þurftu ekki bara að borða
Takk fyrir okkur Ragnhildur og Sveinn, við hlökkum til að koma í næsta þorrablót:) Og þá getur nú Ásta Lóa gætt sér á matnum með okkur.
Ömmur eru alveg yndislegar og ættu allir að eiga a.m.k. eina slíka. Því miður fá nú ekki allir að njóta ömmu sinnar en við mæðgur erum svo heppnar að eiga ömmur á lífi. Ég á ömmu á Húsavík sem er þá auðvitað langamma stelpnanna. Svo eiga þær tvær ömmur hér í Reykjavík og er ekki hægt að hugsa sér betri ömmur en þær, a.m.k. ekki fyrir þessar systur. Edda lærði svo fallega vísu í skólanum sem mig langar að deila með  ykkur, hún er alveg í uppáhaldi þessi:
Gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá.
Því amma er mamma hennar mömmu
og mamma er það besta sem ég á.
Ömmurnar gefa okkur nefnilega mömmu og pabba og þess vegna eru þær svo dýrmætar. Langamma á Húsavík kom í heimsókn til Reykjavíkur um daginn. Við kíktum á hana og Boggu og Hjalla þar sem þau héldu til á Freyjugötunni. Hér erum við allar saman.
Nú tókst mér loksins að setja inn myndir, þurfti að skipta um browser og þetta er bara allt annað líf. Setti nokkrar myndir úr skírninni og svo koma fleiri á næstunni.
Lóa